Bloggfærslur mánaðarins, júní 2009
29.6.2009 | 13:16
Skothelda fuglabúrið að Veiðilæk
Áður en einhver drífur sig upp að Norðurá til að frelsa fangann úr prísundinni verð ég að benda á að risarúðurnar eru víst úr skotheldu gleri. Ég kynnti mér hver bæri ábyrgð á þessu milljónabruðli og komst að því að það er hinn snjalli auramaður Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings. Eða öllu heldur hlutafélagið Veiðilækur, sem tók góðfúslega að sér að koma þessu í kring fyrir eiganda sinn. Vel og vandlega skipulagt þannig að þegar skíturinn hitti viftuna væri raunverulegur eigandi tryggður í bak og fyrir. Það er skrítið að lesa hvernig allt er í pottinn búið, en það gerði ég t.d. hér: http://eyjan.is/blog/2009/04/02/sigurdur-einarsson-skuldar-vis-200-milljona-krona-lan-gegn-vedi-i-halfbyggdu-sveitasetri/, hérna: http://www.visir.is/article/20081015/LIFID01/852707590 og hérna: http://www.dv.is/brennidepill/2008/10/23/brjalud-bygging-bankamanns/. Þetta eru ekkert nýjar fréttir.
Það er kaldranalega táknrænt að sjá maríuerluna læsta inn í þessarri gígantísku 840 fermetra líkkistu. Bara einn af minnisvörðunum um græðgisbrölt íslenskra "athafnamanna" Ég er ekki nógu gírugur til að fatta út frá allri lesningunni hvort þetta gímald með fimm baðherbergjum, stórri borðstofu, 50 fermetra vínkjallara, tvöföldum bílskúr og tveimur gufuböðum sem eru byggð inn í bergið undir setrinu kostar hálfan eða kvart milljarð en spyr. Hver á þetta núna?
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 15:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.6.2009 | 02:04
Milljarður fyrir Maríuerlu?
Ég átti stefnumót við foss um helgina, var búinn að "plotta" á korti hvernig ég gæti keyrt og svo gengið að honum til að sjá og mynda úr nýrri átt. Eftir töluverðan villuakstur um ALLA fjallvegina á milli Þverárhlíðar og Norðurárdals lagði ég bílnum við keðjulæst hlið og arkaði svo af stað til fundar við fossinn með myndavél að vopni. Vegurinn lá upp að "sumarbústað" í byggingu sem ég hefði á einhverjum öðrum degi dáðst að, fyrst vegna staðarvalsins, sem er nánast fullkomið, glæsivillan kúrir milli klettabelta með yfirsýn yfir Norðurá, Grábrók og Baulu, og svo vegna arkítektúrsins. En þennan dag fylltist ég eiginlega bara viðbjóð yfir þessum ljóta flein í dásamlegu landslaginu. Ekki misskilja. Ég unni þeim þess algjörlega sem eru svo lánsamir að geta, fyrir verðmæti verka sinna, hugvits, snilli eða elju byggt sér svo glæst hús á svo fögrum stað, ég er bara búinn að læra undanfarna mánuði að oft er skammt á milli þokka og óþokka!
Ég ráfaði umhverfis slotið eins og túristi sem hefur stolist inn fyrir múrana umhverfis kastala rokkstjörnu og gat ekki varist þeirri tilfinningu að skammlaust, yfirgengilegt óþokkaóhóf skini úr hverjum drætti. Ógeðstilfinningin yfirskyggði þó algjörlega fegurðarskynið þegar ég sá að á bak við þrjátíu fermetra þreföldu rúðurnar flögraði maríuerla, sem hafði greinilega smogið inn um einhverja glufu á nýbyggingunni í leit að æti handa ungum sínum. Húsið var rammlæst og þar að auki þrælmerkt öryggisþjónustu sem fylgdist áreiðanlega með ferðum mínum í gegn um slatta af öryggismyndavélum sem vakta þennan ömurlega minnisvarða um fjárglæfrabruðl. Ég gat eiginlega ekki farið að brjóta þrjátíu fermetra rúðu fyrir spörfugl, það gekk ekki upp í mínum kolli.
Ég hryllti mig og hélt svo áfram ferð minni í leit að fossinum íðilfagra, maríuerlan hlyti að komast út sömu leið og hún komst inn. Fossinn Glanni olli mér ekki vonbrigðum frekar en fyrri daginn og skolaði úr mér gremjuna yfir fanganum í höll græðginnar. Ég fékk gesti í heimsókn í sveitina mína um kvöldið og ákvað að fara næsta dag til að sýna þeim fossinn, veðrið var næstum eins gott og daginn áður. Við fórum að sjálfsögðu til að skoða húsið og sáum að maríuerlan var því miður enn föst í prísundinni. Þarna flaug þessi ræfill á milli risavaxinna gluggagaflanna og rataði ekki út.
Veit einhver hver á þennan andstyggðar kofa? Ég er viss um að viðkomandi mun bruna rakleiðis upp í Borgarfjörð til að hleypa út maríuerlunni svo hún geti vitjað um dauðu ungana sína. Í leiðinni getur hann vonandi stoppað í glufurnar með peningaseðlum svo þessi hundruða milljóna fuglagildra haldi ekki áfram að veiða.
Dægurmál | Breytt 1.7.2009 kl. 14:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)