Kranarnir tróna skakkir og skældir

Skakkir KranarÞegar ég var að "framkalla" þessa mynd sem ég tók niðri á höfn í vikunni rifjaðist upp fyrir mér ljóð sem ég heyrði eða sá eigi fyrir svo alllöngu, og fannst svolítið svalt. Núna hittir það ennþá betur í mark hjá mér! Svo vel að ég fann ljóðið snöggvast á netinu og birti hérna nokkar línur án leyfis höfundar.

Þessi borg er ölvuð
turnar hennar tróna skakkir og skældir
byggingar úr mistri

skip sigla fullum seglum um strætin

áðan spurði mig einhver til vegar
ég svaraði því játandi

en að enginn þeirra lægi lengur til áfangastaðar

Ljóðið heitir "Ölvaða borg" og höfundurinn Hermann Stefánsson. Ég fílaða! Hérna getið þið fundið ljóðið allt ef þið gerið það líka. Hin ölvaða, skakka og skælda borg Hermanns var pottþétt byggð með beygluðum krönum eins og þessum. Nóg af vegum, en allir án áfangastaðar... Hafið þið aldrei upplifað þetta?

Minniði mig svo á að segja ykkur frá síðasta reiðtúr! Óþekktarklárinn kom sko EKKI á óvart!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tiger

Spes mynd þarna hjá þér, bara sniðug. Og ljóðið er töff for sure!

Tiger, 17.4.2008 kl. 02:01

2 Smámynd: Tófulöpp

Hvað ertu að gera á fótum svona seint !  Og takk

Tófulöpp, 17.4.2008 kl. 02:16

3 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Bara að minna þig á að segja frá síðasta reiðtúr. 

Anna Einarsdóttir, 17.4.2008 kl. 21:05

4 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Góð mynd

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 18.4.2008 kl. 15:30

5 Smámynd: Brattur

góð mynd og ljóð...

Brattur, 18.4.2008 kl. 20:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband