Yfirreiðin - Miðbik burtreiðanna ógurlegu

Ro-og-spektÞar sem undirritaður er sönn hetja kleif hann hið brotlega hross aftur ótrauður (les: bæði skelkaður og lerkaður).  Fákurinn var svo tugtaður nett af yfirtamninga- sérfræðingi burtreiðanna og þýddist klárinn riddarann hugumprúða að mestu eftir það. Var svo förinni haldið áfram í humátt á eftir föruneytinu, sem af stakri smekkvísi hafði haldið för sinni áfram frekar en að fylgjast með reiðmennskutilburðum mínum.

Í einu reiðstoppinu var það hins vegar fararskjóti  tugtarans sem var með uppistand, en þar sem þetta var minn dagur var það auðvitað ólukkuknapi dagsins sem varð fyrir barðinu á hrossinu. Þar sem ég hélt í reiðskjótann minn og var í mesta grandaleysi að spenna á mig hjálminn ákvað blessuð merin tugtarans að rjúka af stað þegar hann vippaði sér í hnakkinn, og tók stefnuna akkúrat á milli mín og brotahrossins.

Verandi hetja (eins og kom fram fyrr í sögunni) hélt ég hið fastasta í tauminn með einarri... og hraðaði mér sem mest ég mátti að smella hökubandinu með hinarri, með þeim árangri að ég hraut á kné,  hestur og knapi riðluðust yfir mig á skítugum skeifunum og hlaut ég bylmingshögg með afturhófunum að launum fyrir hugprýðina. Höggið lenti á hálfspenntum hjálminum sem hrökk af mér við hamaganginn. Viðstaddir voru allir sammála um að hruflað hné og fleiðraður lófi væri algjört lágmark, miðað við aðfarirnar!

Ófarir dagsins voru alls ekki að baki...

(Þess má geta að faxprúða friðsemdarhryssan á myndinni er alsaklaus af öllum óspektum)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brattur

... skemmtilegt að lesa þetta... og fræðandi... það stendur nefnilega til að ég, ekki hestamaðurinn... fari í reiðtúr (a?) í sumar... þú gefur mér kannski góð ráð eftir þessa reynslu þína...

Brattur, 7.4.2008 kl. 22:36

2 Smámynd: Tófulöpp

Heyrðu, ég skal gefa þér besta ráðið strax... Mundu umfram allt að nota hjálm! Og sem ekki-hestamaður... Farðu bara á bak dauðþægum og vökrum hrossum. Þá ertu í góðum málum. Að ríða út er góð skemmtun, en það getur verið fjáranum erfiðara að eiga við óþekktarhross!

Tófulöpp, 7.4.2008 kl. 23:51

3 Smámynd: Tiger

  Þú ferð náttúrulega í mál við fararskjótann ... eins gott að vera vel hjálmaður í svona svaðilför. Good night amigo.

Tiger, 8.4.2008 kl. 02:00

4 Smámynd: Tófulöpp

Já einmitt, lögsækja truntu fyrir háðuglega útreið... Hmmm sounds manly!

Tófulöpp, 8.4.2008 kl. 17:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband